sýn
ég sá þig í nótt. veit ekki hvort þú sást mig, en þú fannst fyrir mér. ég horfði á þig úr fjarska og hugsaði "svona fallegur er hann". ég viktaði afkvæmi spendýranna og lyfti stúlkubarninu upp, til þú gætir séð mig halda á því. þú lyftir strák, sem systir þín á. svo blíður og góður. svo skítugur, því við höfðum verið í sveitinni.
ég var feimin í allan dag. ætli þú þekkir mig þegar við hittumst aftur? ætli þú munir eftir litla barninu og litla birninum sem var hreinsaður að innan? má ég heilsa þér og kynna mig?
<< Home